KUALUA Poké Bar býður upp á poké skálar sem að eru oft líkt við "sushi í skál".
Haukur Már Hauksson sem er betur þekktur sem Haukur á YUZU er einn af eigendum KUALUA og sér hann um matseðil staðarins.
Haukur var yfirkokkur á Grillmarkaðinum og starfaði á Zuma, einum flottasta veitingastað heims í London. Ástríða Hauks liggur í asískri matargerð og þykir hann einn sá færasti í þeim geira.